Skapandi greinar og Evrópusambandið – dansa þau tangó? 26.09.11

Fróðleikur á fimmtudegi:

Skapandi greinar og Evrópusambandið – dansa þau tangó?

Hilmar Sigurðsson, einn stofnandi og núverandi framkvæmdastjóri fyrirtækisins CAOZ sem sérhæfir sig í tölvuleikjamyndagerð, heldur fyrirlestur á fundi Já Íslands um áhrif aðildar að Evrópusambandinu fyrir skapandi greinar.

Hilmar hefur að baki yfir 20 ára reynslu sem hönnunar- og framkvæmdastjóri í fyrirtækjum innan skapandi greina. Eftir nám í grafískri hönnun í Bandaríkjunum og í kjölfarið vinnu á auglýsingastofum í Reykjavík, stofnaði hann og stýrði eigin stofu í félagi við aðra í fimm ár. Árið 1995 söðlaði hann um og flutti til Mílanó á Ítalíu þar sem hann var hönnunarstjóri á alþjóðlegri auglýsingastofu í tvö ár. Leiðin lá þaðan til Kaupmannahafnar þar sem hann var einn stofnenda, hönnunar-og framkvæmdastjóri netfyrirtækis sem óx frá fjórum starfsmönnum í 120 á þeim rúmum þremur árum sem Hilmar vann hjá fyrirtækinu. Hilmar flutti aftur til Íslands til að leiða stofnun CAOZ í árslok 2000.

Fundastjóri fundarins er Sigurlína Valgerður Ingvarsdóttir sem er verkfræðingur að mennt en hún starfar sem framleiðandi hjá CCP og er einnig formaður félags tölvuleikjaframleiðenda.

Fundurinn hefst klukkan 20.00

Atburðurinn á Facebook.

Allir velkomnir!

Netverslun verður öruggari innan ESB 02.09.11

Netverslun

Eftir  samningaviðræður milli Evrópuþingsins og 27 aðildarríkja ESB hefur verið komist að samkomulagi um að bæta réttindi neytenda á innri markaðinum. Um er að ræða lög sem tryggja aukin réttindi og verndun neytenda þegar kemur að netverslun, sem færst hefur í aukana síðastliðin ár milli ríkja ESB. Með nýju lögunum munu neytendur sem versla á…

- Lesa meira

Betra útsýni úr Hákoti en Gröf 22.08.11

pjetur-j-eiriksson

Pétur J. Eiríkisson birti grein í Morgunblaðinu þann 17. ágúst þar sem hann gerir að umtalsefni skrif Tómasar Inga Olrich um Ísland og Evrópusambandið. Tómas Ingi hefur gert að umtalsefni að Íslendingar hafi fátt fram að færa innan Evrópusambandsins og eigi því ekkert erindi þangað. Þessu mótmælir Pétur og telur fram ýmis rök fyrir því…

- Lesa meira

Krónan, bjargvættur eða bölvaldur? 04.03.11

Illugi_Gunnarsson

Verður hægt að afnema höftin? Hvað tekur þá við? Þurfa Íslendingar alltaf að búa við tuga prósenta sveiflur í gengi Hjálpar krónan okkur út úr kreppunni? Hver borgar brúsann? Kemur einhliða upptaka erlends gjaldmiðils til greina?
Við þessar spurningar glíma Illugi Gunnarsson og Gylfi Zoega á fundi Sjálfstæðra Evrópumanna 7. mars kl. 17.

- Lesa meira

Aðild auðveldar viðskipti 22.01.11

Fánar

Já, aðild ríkja að ESB auðveldar viðskipti við ríki utan sambandsins. Viðskipti eru að öðru jöfnu auðveldari innan svæða sem lúta sömu reglum en milli svæða þar sem reglur eru ekki þær sömu.

- Lesa meira

Þú ert að niðurgreiða krónuna 07.09.10

Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir

„Væri nú ekki gaman að geta borgað bara einu sinni fyrir fasteignirnar okkar, geta verslað í matinn án þess að þurfa að telja hverja verðlausu krónuna“ … skrifar Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir.

- Lesa meira

Hvað er líkt með Íslandi og Möltu? 08.06.10

Valleta Malta

Reynum að læra af reynslu annarra þjóða. Leggjum okkur fram við skilgreina samningsmarkmið Íslands í viðræðunum sem framundan eru og verum dugleg við að afla okkur upplýsinga og miðla þeim áfram til annarra. Munum að við erum í rauninni öll í sama liði.

- Lesa meira

Næstu fimmtudagsfundir 14.05.10

adalsteinn_leifsson

Viðskiptastefna ESB og áhrif hennar á viðskiptasamninga íslenska ríkisins er viðfangsefni Aðalsteins Leifssonar lektors við HR í erindi hjá Sterkara Íslandi.

- Lesa meira