Leikkona
Framkvæmdastjóri Þekkingarnets Austurlands
Ísland er lýðræðisríki og evrópskt menningarsamfélag, þess vegna eigum við að stefna á fulla aðild að ESB.
Takmörkuð aðild að þessu samfélagi byggð á þröngum sérhagsmunum og tortryggni þjónar ekki hagsmunum okkar.
Evrópusambandið er í mínum huga sú fyrirmynd og það fyrirkomulag í ríkjasamstarfi sem getur orðið til þess að koma á nauðsynlegum þjóðfélagsbreytingum hjá nágrönnum Evrópu í Mið-Austurlöndum, Afríku og Asíu.
Stjórnarformaður CCP
Blaðamaður
Ég segi já vegna þess að ég vil vera fullgildur þátttakandi í þeirri tilraun sem Evrópusambandið er til að takast á við mörg erfiðustu viðfangsefni samtímans og framtíðarinnar: umhverfisvána, afleiðingu alþjóðavæðingarinnar og endursköpun lýðræðisins.
Mér finnst það niðurlægjandi staða fyrir Ísland að vera eingöngu með það sem kallað er faxaðild að hluta Evrópusamstarfsins. Við tökum þegjandi við því sem kemur frá Brussel en höfum engan vettvang til þess að hafa áhrif á þær ákvarðanir sem þar eru teknar.
Ég segi já vegna þess að ég vil sjá Íslendinga ganga hnarreista til samstarfs við helstu nágranna- og viðskiptaþjóðir okkar um ákveðinn afmarkaðan þátt í lífi Evrópu. Þá getum við tekið af enn meiri krafti á því sem okkur finnst mikilvægast: að skapa gott, réttlátt og menningarlegt samfélag.