Utanríkisstefna Íslands eftir lok kalda stríðsins 16.04.11
Alþjóðamálastofnun og Rannsóknasetur um smáríki standa fyrir fundaröð í vetur undir yfirskriftinni Evrópa: Samræður við fræðimenn. Stofnunin hefur fengið til liðs við sig fjölmarga fræðimenn af ýmsum fræðasviðum sem kynna rann sóknir sínar um Ísland og Evrópu á vikulegum fundum í hádeginu á föstudögum.
„Utanríkisstefna Íslands eftir lok kalda stríðsins“ er heitið á fyrirlestri sem Meike Stommer, doktorsnemi við Ernst-Moritz-Arndt háskóla í Greifswald í Þýskalandi, heldur í fundaröðinni föstudaginn 13. maí kl. 12.00.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
Nánari upplýsingar er hægt að finna á heimasíðu Alþjóðamálastofnunar.







