Frumkvæði Evrópubúa 08.04.11
Alþjóðamálastofnun og Rannsóknasetur um smáríki standa fyrir fundaröð í vetur undir yfirskriftinni Evrópa: Samræður við fræðimenn. Stofnunin hefur fengið til liðs við sig fjölmarga fræðimenn af ýmsum fræðasviðum sem kynna rannsóknir sínar um Ísland og Evrópu á vikulegum fundum í hádeginu á föstudögum.
„The European Citizen’s Initiative“ er heitið á fyrirlestri sem Max Conrad, lektor í Evrópufræðum við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands heldur í fundaröðinni 29. apríl kl. 12.00. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Nánari upplýsingar er hægt að finna á heimasíðu Alþjóðamálastofnunar.








