apríl 8, 2011
kl. 12:00:00 til 13:00:00.
kl. 12:00:00 til 13:00:00.
Alþjóðamálastofnun og Rannsóknasetur um smáríki standa fyrir fundaröð í vetur undir yfirskriftinni Evrópa: Samræður við fræðimenn. Stofnunin hefur fengið til liðs við sig fjölmarga fræðimenn af ýmsum fræðasviðum sem kynna rannsóknir sínar um Ísland og Evrópu á vikulegum fundum í hádeginu á föstudögum.
„Evrópusambandið og hvalveiðar Íslendinga“ er heitið á fyrirlestri sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands heldur í fundaröðinni 8. apríl kl. 12.00. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Nánari upplýsingar er hægt að finna á heimasíðu Alþjóðamálastofnunar.