STERKARA ÍSLAND – þjóð meðal þjóða hleypir nú af stokkunum fundaröðinni FRÓÐLEIKUR Á FIMMTUDEGI. Fundirnir verða í Skipholti 50a og hefjast allir kl. 17. Þeir eru ætlaðir félagsmönnum og öðrum áhugasömum um aðild Íslands að ESB. Fundarefni og fyrirlesarar næstu fimmtudaga eru sem hér segir:
25. mars – Ísland, Evrópusambandið og fullveldið
Ragnhildur Helgadóttir prófessor fjallar um fullveldi Íslands og aðild að ESB. Ragnhildur er einn mesti fræðimaður landsins á þessu sviði og er formaður samningshóps Íslands við Evrópusambandið um dóms- og innanríkismál.
———–
8. apríl – Íslenskir frumkvöðlar ræða við ESB
Svana Helen Björnsdóttir forstjóri Stika segir frá mjög fróðlegri heimsókn íslenskra frumkvöðla til höfuðstöðva ESB í Brussel í mars.
———–
15. apríl – Umhverfismálin og ESB
Árni Finnsson formaður Nátturuverndarsamtaka Íslands fjallar um tækifæri og ógnanir í umhverfismálum í tengslum við aðild að ESB.
———–
29. apríl – Uppbyggingarsjóðir, dreifbýlissjóðir og sjávarbyggðasjóðir ESB
Anna Margrét Guðjónsdóttir fjallar um samspil nokkurra uppbyggingarsjóða ESB og hvaða tækifæri gætu falist þar fyrir Ísland.
———–
6. maí – Íslensk menning og Evrópusambandið
Jón Karl Helgason bókmenntafræðingur ræðir um íslenska menningu og aðild að ESB.
———–