Já fyrir fyrirtækin
- Afnám tolla milli Íslands og ESB ríkja á landbúnaðar- og sjávarafurðum – aukin tækifæri til útflutnings og fullvinnslu.
- Áhættuálag fjárfesta og fyrirtækja vegna pólitískrar áhættu á Íslandi minnkar.
- Ákvarðanir teknar með hinum ESB ríkjunum. Nú er nær allur lagarammi íslensks atvinnulífs ákveðinn af ríkjum ESB, án þátttöku Íslands.
- Auðveldari og traustari áætlanir – keypt og selt í sömu mynt. Gengissveiflur setja áætlunargerð ekki lengur úr skorðum.
- Aukið traust á íslenskum fyrirtækjum vegna þess að þau starfa á þekktu og viðurkenndu markaðssvæði og lúta reglum þess. Ekki síst þegar evran hefur leyst krónuna af hólmi.
- Aukinn stöðuleiki með evru í stað krónu.
- Efnahagssamdráttur mun ekki leiða til gjaldeyriskreppu, verðbólgu og himinhárra vaxta eins og raunin hefur orðið í fortíð.
- ESB er langmikilvægasta markaðssvæðið fyrir útflutning á íslenskri þjónustu og íslenskum vörum með um 60 – 80% hlutdeild.
- Frelsi til athafna og kaupa og selja eignir til og frá útlöndum með evru.
- Gagnsæi og auðveldari verðsamanburður við inn- og útflutning.
- Lægri fjármagnskostnaður eykur samkeppnishæfni og greiðir fyrir uppbyggingu atvinnulífs.
- Minni viðskiptakostnaður við lönd innan ESB vegna tollabandalags og gengisáhætta verður úr sögunni.
- Möguleikar opnast fyrirtækjum til að geta átt bein viðskipti við erlenda banka.
- Rekstrarafkoma ræðst af árangri í rekstri og markaðsstarfi en ekki af sveiflum í gengi eins og nú er í svo ríkum mæli.