Sjálfstæðir Evrópumenn
Félagið Sjálfstæðir Evrópumenn var stofnað í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu föstudaginn 12. febrúar 2010.
Tilgangur félagsins er að standa vörð um sjálfstæði Íslands, áframhaldandi samvinnu Íslands við vestrænar lýðræðisþjóðir og stuðla að efnahagslegum og pólitískum stöðugleika, trausti, einstaklings- og atvinnufrelsi og frjálsum viðskiptum. Til þess að ná þessum markmiðum vill félagið stuðla að hagstæðum samningi um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
STJÓRN
Formaður
Benedikt Jóhannesson
Meðstjórnendur
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Pavel Bartoszek
Ellisif Tinna Víðisdóttir
Halldór Halldórsson
Baldur Dýrfjörð
Hanna Katrín Friðriksson
Samþykktir fyrir Sjálfstæða Evrópumenn
1. gr.
Félagið heitir: Sjálfstæðir Evrópumenn.
2. gr.
Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík.
3. gr.
Tilgangur félagsins er að standa vörð um sjálfstæði Íslands, áframhaldandi samvinnu Íslands við vestrænar lýðræðisþjóðir og stuðla að efnahagslegum og pólitískum stöðugleika, trausti, einstaklings- og atvinnufrelsi og frjálsum viðskiptum.
Til þess að ná þessum markmiðum vill félagið stuðla að hagstæðum samningi um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
4. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með fræðslu, kynningu, útgáfu, ráðstefnum og annarri þeirri starfsemi sem er til þess fallin að markmiðin náist.
5. gr.
Félagið er opið öllum þeim sem vilja vinna að markmiðum félagsins. Stjórn samþykkir nýja félagsmenn og heldur skrá yfir þá. Stjórn félagsins leggur tillögu um félagsgjald fyrir félagsfund.
6. gr.
Stjórn félagsins er kjörin af félagsmönnum á aðalfundi. Stjórnin skal skipuð sjö félagsmönnum, það er formanni og sex meðstjórnendum. Stofnfundur kýs í upphafi þrjá stjórnarmenn til tveggja ára og þrjá til eins árs. Formaður er kosinn sérstaklega til tveggja ára. Aðalfundur kýs formann sérstaklega annað hvert ár og þrjá stjórnarmenn árlega til tveggja ára. Formaður boðar stjórnarmenn á stjórnarfundi þegar þurfa þykir. Daglega umsjón félagsins annast stjórn félagsins. Stjórn skiptir með sér verkum.
Firmaritun félagsins er í höndum meirihluta stjórnar. Engin laun eða þóknanir eru greidd fyrir setu í stjórn félagsins.
Stjórn má skipa nefndir um einstök verkefni eða málaflokka eða kalla einstaka félaga til starfa eftir því sem þurfa þykir.
7. gr.
Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Stjórn félagsins heldur aðalfund einu sinni hvert almanaksár og aðra fundi eftir því sem ástæða er til og skal til þeirra boðað með tryggilegum hætti, auglýsingu í blöðum eða með tölvupósti. Á aðalfundi félagsins skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega taka þátt í aðalfundi. Meirihluti atkvæða á fundi ræður úrslitum mála sé annað ekki tekið fram. Falli atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns.
8. gr.
Öllum hagnaði af starfsemi félagsins skal varið til að sinna tilgangi félagsins skv. 3. og 4. grein.
9. gr.
Ákvörðun um slit félags verður tekin á stjórnarfundi með einföldum meirihluta og renna hreinar eignir þess til góðgerðarfélaga skv. nánari ákvörðun stjórnar.
Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi félagsins og öðlast þegar gildi.
Reykjavík, 12. febrúar 2010

